mánudagur, desember 27, 2010

GLEÐILEG JÓL - HANDA MÖMMU OG PABBA

HAPPY CHRISTMAS MOM & DAD

Litla ömmutré, tak tak það hefur vakið mikla gleði hér á
heimilinu : D

The little Christmas tree from Gran, has brought the holiday spirits to the home : D

Huggusokkar komnir á fætur nú geta jólin komið

Cosy homiesocks on feet, now Christmas can come ; )

Aðeins verið að hrista pakkana hihihi var skömmuð æði mikið frá því að pakkarnir voru settir undir tréð og til 24.....!!

Just a little shake hihihi have been told off ever since the presents were put under the tree untill the 24th then it was OK wohoo!!

Jólamaturinn litli...hér var ekkert verið að troða meðlæti á borð, vildum heldur troða okkur full af kjéti, kartöflum, sósu & SÚKKULAÐI : D

The tiny Christmas dinner...not so many side dishes in this house, we'd rather stuff us silly with meat, potatoes, gravy &
CHOCOLATE : D

Komin í nissasokkana og peysuna góðu...ull frá toppi til táa...frábært

Got his elf socks on & the new viking sweater...wool from top to toe...NICE

þriðjudagur, nóvember 23, 2010

Puccini

Var ógurlega menningarleg um síðustu helgi : D
Bauð konunni í óperuna. Dottaði örlítið í fyrri hálfleik en var svona líka hressileg eftir hvítvínsglasið í hálfleik...Við sáum
Manon Lescaut eftir Puccini
Rosa drama...ung stúlka á leið í klaustur verður ástfangin af fátækum stúdent nema hvað henni er rænt af gömlum auðmanni sem kynnir hana fyrir vellystingum hástéttar lífsins.

sunnudagur, nóvember 14, 2010

Mamma mamma sjáðu hvað ég er dugleg KLEINUR

Það er ekkert að marka litina því ég get aldrei fundið út úr flassinu á þessum litlu vélum...

En eins og þið sjáið komu þær út í alls kona stærð og formi...

Við gerðum 2 & hálfa uppskrift í þremur hollum svo engin af þeim varð eins...fyrst gerðum við hálfa og settum súkkulaðibita í...hahaha já súkkulaði. Það deig varð flottast, mjúkt og flauelsfínt. Hin tvö urðu einhvern vegin seigari í sér...svo var prófað að steikja, þær urðu svoldið stökkar í gegn...svo öllum kleinunum sem búið var að snúa var hnoðað saman aftur og flattar út til að búa til þykkri kleinur...það virkaði fínt. Mjúkar og fínar inn í og brúnar og stökkar utan á mmmmmmmmmm nammi namm Ég fæ myndir frá Heiðu vinkonu frá kleinugerðinni sjálfri ; )
Í þetta skiptið nægir að þið hlægið að stærðar-, litar- & áferðarmun á þessum kleinum.

Knús og kossar frá kleinunum í Århus : *

fimmtudagur, nóvember 11, 2010

Æ, ég óska svo mikið...

Jæja...endaði loks með að drífa í að sækja um vinnur : D er samt pínu kvíðin yfir þessu öllu, ekki annað hægt að segja en að vinnufélagarnir á hótelinu séu yndislegir...flestir en ég meika þetta ekki lengur og kominn tími til að flytja um set þegar maður veit að það er enginn möguleiki á launahækkun eða stöðuhækkun!!! Svo á þriðjudaginn dreif ég mig af stað með umsókn á lítið ökólógískt kaffi/take away stað...2 tímum seinna var hringt og spurgt hvort ég vildi koma í viðtal daginn eftir...sem ég myndi segja að væri gott tákn!!! Veit samt ekki alveg hvernig gekk, oh boy oh boy...hef enga tilfinningu fyrir því : s skondið samt...stelpan sem ég ætti að vera að vinna á móti (sem daglegur rekstrarstjóri...hahaha hljómar kjánalega) var að vinna í móttökunni á hótelinu....svo ég veit ekki alveg hvort það kemur mér til góða eða ekki!!

Æ, ég óska svo mikið...væri svo huggulegt að vinna á kaffihúsi, hef lengi dreymt um að vinna með mat og þá sérstaklega svona holla útgáfu : D

Sendið mér góða strauma fallega fólkið mitt : *

föstudagur, nóvember 05, 2010

Ja hérna hér...

-Ég held bara að ég sé nokkurn veginn búin með jólainnkaup fyrir Ísland : D
-ég er með ofsakláða undir brjóstunum : s
-keypti ekta danskan lyktar ost og líkar bara ok : o
-fer ekki heim um jólin : (
-fyrsti jólaölinn er runninn niður : D
-langar geðveikt í snakk : s
-en má ekki því þá fæ ég kílóið á mig aftur...og við viljum það væk ; )

Ja hérna hér...!

Knús í krús

þriðjudagur, október 19, 2010

Gæti Lafðin kennd við GaGa mögulega verið GAGA!!!

(Ó)staðfestar heimildir segir að ástæða þess að fröken súperstjarna, sem spilar í kvöld í Danska smá/stórbænum Herning, hafi neitað gistingu vinsæla Radisson hótelsins (kosið besta hótel utan Kaupmannahafnar 7 ár í röð) vegna hræðslu við drauga!! Þar sem neitað var að kaupa inn töfralækni til að blessa/afdrauga húsið ákvað Dívan að halda annað ; )

þriðjudagur, september 28, 2010

Duga eða drepast...

Hætti að reykja í jan/feb...nú er okt byrjun og kjéllan búin að bæta á sig ca.8-10 kg. er það ekki bara yndislegt : s
Mér hefur þó verið sagt að vogin ætti að hætta að stíga eftir um 6 mánuði...& það ætla ég rétt að vona...en við því er bara eitt að gera berjast á móti & hendast af stað af miklum móði...er farin að hlaupa aftur...ekta hlaupa ekki bara prufuskokk. Svo hefur kærasti "fyrrverandi konunnar minnar" tekið trítluna að sér...hann er náttla bara 2 metrar og músklabolti hahahaha það er alveg kostulegt að sjá okkur saman þarna, stærðarmunurinn er fyrir það fyrsta bara æði en svo lyfti ég því léttasta og hann því þyngsta ég hélt ég yrði ekki eldri...gott að það þarf ekki mikið til að skemmta mér : D

Shit þarf að pissa...geðveikt mikið svo...hej hej ; )